t
Tungufljót – Eftirsótt sjóbirtingssvæði
Tungufljót
Tungufljót í Skaftártungu er í hópi eftirsóttustu sjóbirtingssvæða landsins. Árlega veiðast rígvænir sjóbirtingar í Tungufljóti, sem oft eru um eða yfir 15 pund, og líklega er það helsta ástæðan fyrir þessari miklu eftirspurn. Sjóbirtingurinn gengur seint í Tungufljót og stærstu göngurnar koma stundum ekki fyrr en undir lok veiðitímans. Breytileiki árinnar vekur alltaf undrun og nýir veiðistaðir verða til en aðrir hvera. Þetta á sérstaklega við um neðstu veiðistaði fljótsins þar sem vatnamót eru hverju sinni. Haustið 2007 veiddust fjölmargir sjóbirtingar í Tungufljóti sem vógu 10-16 pund. Óvíða er stórfiskavonin því meiri.
Við vekjum athygli á því að í vorveiðinni verður að sleppa öllum fiski.
| Tungufljót - Almennar upplýsingar |
| Staðsetning: |
Tungufljót er um 245 kílómetra frá Reykjavík en um hálfrar klukkustundar akstur er frá Vík í Mýrdal að veiðihúsinu í landi Hemru. |
| Veiðisvæði: |
Veiðisvæði I nær frá ármótum Eldvatns að ármótum Miðár. Veiðisvæði II nær frá ármótum Miðár að Titjufossi. |
| Tímabil: |
1. apríl – 20. okóber. |
| Veiðileyfi: |
Vorveiði 1. apríl – 27. maí – stakir dagar frá hádegi til hádegis. Vikur með veiðileyfum – 4 stangir með húsi frá föstudegi til föstudags - 27. maí – 5. ágúst. Tveir dagar í senn frá hádegi til hádegis – 6. ágúst til 20. október.
Stangirnar seljast 2 eða 4 saman. |
| Daglegur veiðitími: |
Kl. 7-13 og 16-22 en í vorveiðinni og frá og með 14. ágúst er veiðitíminn frá 7-13 og 15-21. |
| Fjöldi stanga: |
4. |
| Leyfilegt agn: |
Fluga, maðkur og spónn. Í vorveiðinni er eingöngu leyfð fluga og skal öllum fiski sleppt. Í haustveiðinni, frá og með 15. september, er tveggja sjóbirtinga kvóti. Eftir sem áður má drepa lax utan kvóta. |
| Vinsælar flugur: |
Flæðarmús, Black Ghost, Svartur Nobbler, Black and Orange Marabou, Orange Nobbler og Magenta Wooly Bugger og aðrar vinsælar straumflugur. |
| Veiði síðastliðið ár: |
264 sjóbirtingar, 3 bleikjur og 42 laxar. |
| Umsjónaraðili: |
|
|
Veiðihús
Veiðihúsið hefur nú verið stórbætt: Það stendur í hlíð í landi Hemru með útsýni yfir meirihluta veiðisvæðisins. Í húsinu eru fjögur tveggja manna herbergi auk svefnlofts. Eldra húsið hefur nú verið rafvætt og gerðar á því miklar endurbætur auk þess sem að nýtt hús er risið við hlið þess gamla. .Við húsið gasgrill. Veiðimenn eru beðnir um að ganga vel um húsið og minntir á að taka með sér allt rusl að lokinni dvöl, þrífa húsið vel og skilja eftir opið. Veiðimenn leggja sjálfir til sængurfatnað eða svefnpoka, allar hreinlætisvörur og matvæli. Veiðimenn mega koma í hús klukkutíma áður en veiði hefst og skulu rýma húsið klukkustund eftir að veiði lykur. Leiðarlýsing að veiðihúsi
Ekið er austur fyrir Vík í Mýrdal í um það bil 30 mínútur, eða þar til komið er að stóru skilti á vinstri hönd sem leiðbeinir mönnum heim að bæjunum Hemru og Flögu. Keyrt er fram hjá bænum Hemru, fram hjá félagsheimilinu og er veiðihúsið næsta hús á hægri hönd. Annað
Tungufljót heillar enn sem fyrr, það sýnir ásókn félagsmanna í veiðileyfi í þessu margrómaða fljóti. Fjöldi veiddra fiska er ekki svo ýkja mikill, en stærð þeirra og fyrirferð í minningunni er því mun meiri. Breytileiki árinnar vekur alltaf undrun og furðu, veiðistaðir koma og aðrir fara. Þetta á sérstaklega við um neðstu veiðistaði fljótsins þar sem vatnamót eru hverju sinni.
Skylt er að sleppa öllum vorfiski, enda er hann með öllu óhæfur til matar. Þar af leiðandi er eingöngu fluguveiði leyfð í Tungufljóti
| Tungufljót - Verðskrá 2010 |
| Veiðidagar |
Stangarfjöldi |
Félagsmenn |
| 1/4 - 3/4 |
4 |
16.900 |
| 3/4 - 6/4 |
4 |
12.900 |
| 6/4 - 2/5 |
4 |
6.900 |
| 2/5 - 38/5 |
4 |
4.900 |
| 28/5 - 6/8 |
4 |
44.900 |
| 6/8 - 9/8 |
4 |
5.900 |
| 9/8 - 17/8 |
4 |
5.900 |
| 17/8 - 25/8 |
4 |
10.900 |
| 25/8 - 6/9 |
4 |
16.900 |
| 6/9 - 12/9 |
4 |
19.900 |
| 12/9 - 20/9 |
4 |
25.900 |
| 24/9 - 26/9 |
4 |
29.900 |
| 26/9 - 28/9 |
4 |
29.900 |
| 28/9 - 30/9 |
4 |
29.900 |
| 30/9 - 2/10 |
4 |
29.900 |
| 2/10 - 4/10 |
4 |
29.900 |
| 4/10 - 6/10 |
4 |
29.900 |
| 6/10 - 8/10 |
4 |
29.900 |
| 8/10 - 10/10 |
4 |
29.900 |
| 10/10 - 12/10 |
4 |
29.900 |
| 12/10 - 14/10 |
4 |
29.900 |
| 14/10 - 16/10 |
4 |
29.900 |
| 16/10 - 18/10 |
4 |
29.900 |
“Skaftártunga er afburða fögur sveit og Tungufljót sannkölluð lífæð hennar. Sjóbirtingurinn gengur seint, en ég get alveg beðið því aðrir eins höfðingjar finnast varla. Þá getur aldan orðið stór á eftir flugunni og takan myndarleg. Þangað dreymir mig oft í hægu veðri með sól lágt á lofti.”Sigurður Pálsson
Fara efst á síðu