Aðalfundur SVFR – 29. nóvember 2008
Haldinn á Grand Hótel Reykjavík kl. 13.30

1. Formaður setur fundinn – Guðmundur Stefán Maríasson (GSM), formaður SVFR, bauð fundarmenn velkoma og setti fundinn.
2. Formaður minnist látinna félaga – GSM las upp nöfn þeirra félagsmanna sem létust á starfsárinu og bað fundarmenn um að rísa úr sætum og minnast þeirra.
3. Formaður tilnefndir fundastjóra – Stungið var upp á Þórólfi Halldórssyni (ÞH) sem fundarstjóra og var sú tilnefning samþykkt með lófataki. ÞH tók í framhaldi af því við stjórn aðalfundarins. Hann sagðist hafa kannað að til fundarins hefði verið boðað á löglegan hátt og svo hefði reynst vera.
4. Fundarstjóri skipar tvo fundarritara – ÞH stakk upp á því að Eiríkur St. Eiríksson og Þorsteinn Ólafs rituðu fundargerð. Var það samþykkt samhljóða.
5. Inntaka nýrra félaga – Frá því á síðasta stjórnarfundi hafa 5 manns gengið í félagið og var þeim veitt formleg innganga í félagið á aðalfundinum. Með þeim er fjöldi félagsmanna kominn í 3616.
6. Formaður flytur skýrslu stjórnar – GSM tók næstur til máls og flutti skýrslu stjórnar sem er að finna í ársskýrslu félagsins (sjá ársskýrslu). Hann sagðist ekki ætla að lesa skýrsluna frá orði til orðs heldur tæpa á því helsta sem unnið hefði verið að á starfsárinu.
7. Gjaldkeri les upp reikninga – Marinó Marinósson (MM), gjaldkeri SVFR, tók næstur til máls og for yfir reikninga félagsins fyrir síðasta starfsár. MM sagðist ekki myndu lesa reikningana lið fyrir lið heldur geta helstu niðurstöðutalna. Hann vakti og athygli á að um væri að ræða samstæðureikning fyrir SVFR, SVFR ehf. og hlutdeildarfélagið Veiðikortið ehf. Helstu niðurstöðutölur eru þær að rekstrartekjur námu alls 368,3 milljónum króna og rekstrargjöld námu tæpum 378,0 milljónum króna. Tap fyrir  fjármunatekjur og fjármagnsgjöld nam því tæpum 9,7 milljónum króna. Að teknu tilliti til fjármunatekna og fjármagnsgjalda var rekstur félagsins jákvæður um tæplega 26 þúsund krónur á árinu. (Sjá nánar ársreikning SVFR í ársskýrslu).
8. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga – Fundarstjóri gaf því næst orðið laust um þennan lið. Bjarni Júlíusson (BJ) var sá eini sem kvaddi sér hljóðs. Hann sagðist þakka formanni fyrir greinargott yfirlit. Þótt stjórn SVFR hefði ekki náð fjárhagslegum markmiðum á árinu þá væri greinilegt að hún hefði náð að spila vel úr þeim spilum sem henni voru gefin. BJ sagði að lakari afkomu mætti einkum rekja til tveggja þátta. Vísitöluhækkanir árleigusamninga hafi orðið miklu hærri en spáð hafði verið og Fiskræktarsjóður hefði ekki styrkt netauppkaup SVFR fyrir austan fjall um 3 milljónir króna eins og vonir stóðu til. BJ sagði að tvennt vekti helst athygli hans í félagsstarfinu um þessar mundir. Annars vegar væri gott að heyra að netauppkaupamálin væru enn á lífi og vonandi tækist að halda því máli áfram. Hins vegar væri það leiga SVFR á urriðasvæðunum í Mývatnssveit og Laxárdal. Vissulega gæti rekstur svæðanna orðið SVFR þungur en öll él birti upp um síðir og þegar það gerðist þá væri gott að vera með þessi góðu veiðisvæði innan félagsins. BJ nefndi einnig að það væri jákvætt að stjórn SVFR væri í viðræðum við veiðiréttareigenda vegna stöðu mála og vonandi myndu þær viðræður skila tilætluðum árangri. BJ þakkaði að lokum stjórn fyrir mikið og gott starf í þágu félagsins á starfsárinu.
9. Reikningar bornir undir atkvæði – ÞH bar nú reikninga SVFR upp og voru þeir samþykktir samhljóða.
10. Gjaldkeri ber fram tillögu um inntöku- og árgjöld – MM greindi frá því að stjórn SVFR legði til að gjöldin yrðu óbreytt milli ára. Samþykkt samhljóða.
11. Kynning á ætlunum fyrir 2008/09 – MM kom aftur í ræðustól og sagði það hafa verið venju sl. ár að stjórn legði fram rekstraráætlun fyrir starfsárið sem framundan væri. Vegna efnahagsástandsins í þjóðfélaginu hefði enn sem komið er ekki verið hægt að ljúka við gerð rekstraráætlunar. Stjórn félagsins ætti í viðræðum við viðsemjendur sína, vísitalan hefði hækkað upp úr öllu valdi og söluskrá fyrir 2009 væri ekki tilbúin. Niðurstöður viðræðna myndu liggja fyrir á næstunni og í framhaldinu væri hægt að gefa út rekstraráætlun. Markmiðið væri að verja hagsmuni og sjóði SVFR. Allra leiða yrði leitað til sparnaðar og meðal þess sem kæmi til greina væri að draga úr útgáfustarfsemi.
12. Kynning og kosning formanns til eins árs – ÞH greindi frá því að þar sem aðeins eitt framboð frá sitjandi formanni hefði borist væri GSM sjálfkjörinn til eins árs. Var kjörinu fagnað með lófataki.
13. Kynning og kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja ára – ÞH gat þess að þar sem aðeins þrír sitjandi stjórnarmenn, sem lokið hefðu kjörtímabili sínu, hefðu gefið kost á sér í kjöri til stjórnar þá skoðuðust þeir Gylfi Gautur Pétursson, Marinó Marinósson og Þorsteinn Ólafs réttkjörnir til setu í stjórn SVFR næstu tvö árin.
14. Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara til eins árs – ÞH sagði að stungið hefði verið upp á Árna Birni Jónassyni og Finnboga Guðmundssyni sem skoðunarmönnum fyrir næsta ár og Erlingi Guðmundssyni til vara. Samþykkt með lófataki.
15. Kynning og kosning á fimm mönnum í fulltrúaráð til tveggja ára – ÞH sagði að fimm sitjandi fulltrúar í fulltrúaráði, sem væru að ljúka kjöltímabili sínu, hefðu allir gefið kost á sér til endurkjörs. Engin mótframboð hefðu borist og því væru Benedikt Lövdahl, Edvard Ólafsson, Ólafur Kr. Ólafsson, Ragnheiður Thorsteinsson og Þórólfur Halldórsson sjálfkjörin.
16. Lagabreytingatillögur – ÞH sagði að engar lagabreytingatillögur hefðu borist aðalfundinum. Hann gerði því næst stutt hlé á fundinum á meðan kaffi og veitingar voru fram bornar.
17. Önnur mál – Að loknu kaffihléi var komið að liðnum önnur mál. Áður en hann gaf orðið laust las hann upp ályktun frá stjórn SVFR um Elliðaárnar. (Sjá ályktun). Sagðist ÞH leggja tillöguna fram til umræðna áður en greidd yrðu atkvæði um hana. Önnur mál væru sömuleiðis til umræðu. Fyrstur á mælendaskrá var Einar Guðmundsson (EG) sem byrjaði að þakka fyrir kaffið og veitingarnar. Sagðist EG vilja spjalla lítillega um Elliðaárnar. Hann sagði það sína skoðun að tveggja laxa kvóti á stöng í Elliðaánum væri fráleitur. Þá væri alveg eins gott að hætta því að veiða í ánum. EG sagðist hafa orðið var við það þegar hann gekk með ánum í sumar sem leið að á sumum stöðum hefði verið haugur af gæsaskít á árbakkanum og líkja mætti ánni við sannkallaðan drullupoll vegna þessa. Fiskurinn gæti ekki verið ætur. EG sagðist andmæla hugmyndum um byggingu Slökkvistöðvar fyrir neðan Stekkjarbakkann en hann teldi farfugla, líkt og gæsir, vera mesta vandamálið. Enginn vissi hvaða sníkjudýr þessir fuglar gætu borið með sér erlendis frá til landsins. EG sagði brýna nauðsyn bera til þess að fá ýlur til að fæla gæsirnar frá Elliðaánum og hann sagðist hvetja fundarmenn til að samþykkja að ýlum verði komið upp við árnar í því skyni. Hann sagði sömuleiðis að fjórir laxar á stöng væri lágmarkskvóti og nær væri að hafa kvótann sex eða jafnvel átta laxa á stöngina. Enginn annar bað um orðið og ÞH bar því upp ályktun stjórnar en vísaði þeim tilmælum til stjórnar að þar sem að ályktunin væri löng væri við hæfi að greina á milli eiginlegrar ályktunar og þess sem líta mætti á greinargerð með tillögunni. Var tillagan samþykkt samhljóða. ÞH bjó sig því næst til að gefa formanni orðið áður en fundi væri slitið en EG bað þá aftur um orðið sem fundarstjóri varð við. EG sagðist hafa ýmislegt að athuga við það hve veiðin í Stóru-Laxá hefði verið léleg og þá ekki síst í byrjun veiðitímabilsins. Áin væri steindauð í júní og byrjun júlí þrátt fyrir að mikið hefði áunnist í netaupptökumálum. Það hlyti að vera hægt að auka klak í ánni og EG sagðist sömuleiðis vilja að upphaf veiðitímabilsins yrði fært aftar, t.d. til 5. júlí, og veitt yrði lengur fram á haustið því oft væri nóg af fiski í ánni í lok veiðitímabilsins. EG minnti á að öflugt klakstarf hefði skilað frábærum árangri í Rangánum og fiskgengd þar hefði verið með eindæmum góð og veiðitölur hefðu verið ótrúlegar. Í ljósi þess væri það lágmark að veiðiréttareigendur við Stóru-Laxá legðu meira af mörkum í stað þess að þiggja bara aukinn arð á sama tíma og rekstur SVFR kæmi út í tapi. Miklar blikur væru á lofti og veiðiréttareigendur yrðu að taka á sig skellinn eins og aðrir landsmenn. GSM kvaddi sér næstur hljóðs og svaraði EG. Varðandi Elliðaárnar væri því til að svara að Orkuveita Reykjavíkur færi með forræði yfir ánum og ákvæði veiðifyrirkomulag, þ.m.t. kvóta. Kvótinn í sumar hefði verið skertur vegna þess að seiði sem setja átti í árnar hafi drepist. Ekki væri því hægt að segja að tveggja laxa kvóti hafi verið ákveðinn til frambúðar. GSM sagðist deila áhyggjum EG vegna Stóru-Laxár en það mætti koma fram að net færu nú síðar niður í Hvítá og Ölfusá en áður. Áform hefðu verið uppi um að auka við seiðasleppingar en Veiðimálastofnun hefði lagst gegn því. Þá væri ekki leyfilegt lögum samkvæmt að veiða lax lengur en til 30. september nema í ám sem veiðin byggði alfarið á sleppingum gönguseiða. Stóra-Laxá væri ekki í þeim flokki. EG fékk nú orðið á nýjan leik og las upp tillögu sem fól í sér að kvóti í Elliðaánum verði aukinn úr tveimur löxum í fjóra laxa á stöng. ÞH vakti athygli EG og fundarmanna á því að þar sem að OR ákvæði kvótann þá væri í mesta lagi hægt að beina því til stjórnar SVFR að taka kvótamálin upp við OR. Spurði ÞH hvort EG væri sáttur við þá málsmeðferð. Sagðist EG vera það. Tillaga hans var í framhaldi af því samþykkt með öllum greiddum atkvæðum gegn einu. Áður en ÞH gaf formanni SVFR færi á að flytja lokaorð, skaut EG því að úr sæti sínu að hann hefði gleymt að nefna ýlurnar í tillögu sinni. ÞH lagði því til að stjórn SVFR myndi skoða ýlumálið sérstaklega.
18. Formaður flytur lokaorð – GSM fékk nú orðið og sagðist hafa átt von á líflegri umræðum á aðalfundinum í ljósi þeirrar erfiðu stöðu sem nú væri í þjóðfélaginu. Hann sagðist vonast til þess að ekki skapaðist hættuástand á komandi ári. GSM sagði að í viðræðum stjórnar SVFR við viðsemjendur sína hefði einn aðili nú þegar neitað að verða við skynsamlegum og eðlilegum óskum SVFR um aðgerðir sem grípa þyrfti til vegna efnahagsástandsins og ört vaxandi verðbólgu. GSM sagði að SVFR myndi ekki láta beygja sig til að hverfa frá sanngjörnum kröfum og kalla með því stórtap yfir félagið. Hann sagðist loks vilja þakka stjórn og starfsfólki fyrir mikið og gott starf á starfsárinu. ÞH þakkaði hann fyrir röggsama fundarstjórn.
19. Fundarstjóri slítur fundi – ÞH tók því næst aftur til máls. Þakkaði fundarmönnum góða fundarsetu og sleit því næst fundi kl. 15.05.

 
Icelandic English Spanish German French