Um svfr.is                                                                                                                  

  • Svfr.is er veiðivefur Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Verkefnisstjóri stjórnar er Árni Friðleifsson, stjórnarmaður. Ritstjóri Svfr.is er Haraldur Eiríksson og hægt er er að senda honum póst með ábendingum og athugasemdum á póstfangið ritstjori@svfr.is. Hér fyrir neðan er fjallað um einstaka þætti svfr.is.

  • Veiðileyfavefur 

    Á heimasíðunni er að finna upplýsingar um öll veiðisvæði og veiðileyfi sem Stangaveiðifélag Reykjavíkur býður í almennri sölu til félagsmanna sem og annarra. Hannað hefur verið nýtt og aðgengilegt sölukerfi veiðileyfa þar sem notendur vefsins geta á einfaldan og öruggan hátt gengið frá frá kaupum á veiðileyfum á veiðisvæðum SVFR og prentað þau út að viðskiptum loknum. Meðal nýjunga á veiðileyfavefnum má telja fullkomið veiðileyfaleitarforrit undir heitinu “Veiðileyfaleitin” sem gerir notendum síðunnar kleift að finna laus veiðileyfi á því verðbili og tímabili sem þeim hentar hverju sinni. Félagsmenn fá veiðileyfi á 20% ódýrara verði en utanfélagsmenn. Upplýsingar um inngöngu í félagið er að finna undir liðnum “Um félagið.” Einnig eru á veiðileyfavefnum upplýsingar um öll veiðisvæði sem heyra undir Landssamband Veiðifélaga af vef samtakanna angling.is. 

  • Fréttavefur 

    Á fréttavef eru að finna vandaðar fréttir um stangaveiði á Íslandi og málefni sem þeim tengjast. Reglulega bætist við fjöldi frétta sem hægt er að fletta upp aftur í tímann. Einnig hægt að leita í öllum fréttabankanum sem myndast. Á fréttasíðunni er auk þess að finna veiðisögur, pistla um stangaveiði, veiðitölur og fleira. Fréttastreymið ræðst eðlilega mikið af sambandi félagsmanna við ritstjóra síðunnar. Félagar Stangaveiðifélagsins sem og gestir á ársvæðum okkar eru hvattir til að koma öllum fréttum til ritstjóra hvort sem þær eru af veiði, aflabresti, skilyrðum til veiða, veiðisögum eða hverju öðru forvitnilegu sem lítur að stangaveiði.

Spjallvefur 

Spjallvefurinn er lifandi vettvangur almennrar umræðu og er hann öllum opinn sem vilja senda inn fyrirspurnir eða taka þátt í umræðu um málefni tengd stangaveiði. Athugið að þátttakendur eru beðnir um að gæta velsæmis í skrifum sínum og er ritstjóra heimilt að fjarlægja pósta. Hefur hann úrskurðarvald þegar að skrif eru fjarlægð en ber honum jafnframt að geta þess þegar að svo er gert.

  • Leikjavefur 

    Þátttaka í leikjum á Svfr.is er öllum heimil. Þeir sem senda inn netfang sitt verða um leið félagar í netklúbbi svfr.is. Netklúbburinn býður reglulega upp á ýmis spennandi tilboð sem send eru meðlimum. 

  • Myndavefur 

    Á myndavefnum er að finna myndir frá ársvæðum félagsins og aðrar myndir tengdar stangaveiði. 
 
Icelandic English Spanish German French