tÁlftá á Mýrum
Álftá á Mýrum
Álftá er afar skemmtilegt og þæginleg 2ja stanga laxveiðiá á Mýrunum. Þarna hefur verið góð veiði undanfarin ár og tvö síðastlegin sumur hafa verið þau aflahæstu, sumarið 2010 veiddust 475 laxar og sumarið 2009 veiddust 625 laxar. Álftá á upptök sín í Álftahrauni og í mörgum litlum stöðuvötnum þar í kring. Í Álftá hefur verið mjög góð sjóbirtingsveiði.
| Álftá á Mýrum - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Mýrar, um 98 km frá Reykjavík |
| Veiðisvæði: | Öll Álftá og Veituá frá Ármótum að veiðistað nr.49. Gott aðgengi er að veiðistöðum og fólksbílafæri að þeim flestum. |
| Tímabil: | . |
| Veiðileyfi: | Til sölu hjá okkur eru nokkur 2ja daga holl þar sem byrjað og endað er á hádegi. Stangirnar tvær eru seldar saman. |
| Daglegur veiðitími: | Veitt er frá kl. 7.00 til 13.00 og 16.00 til 22.00 daglega. |
| Fjöldi stanga: | 2 |
| Leyfilegt agn: | Fluga og maðkur. |
| Vinsælar flugur: | Svört&rauð frances, blue boy, green but og haugurinn. |
| Veiði síðastliðið ár: | 475 laxar |
| Umsjónaraðili: | Dagur Garðarsson, í síma 893 5337 |
|
Veiðihús
Veiðihúsið er með tveimur 2jamanna svefnherbergjum, rafmagni og hita. Að auki er svefnrými á svefnlofti. Í baðherbergi er sturta og við húsið er gasgrill. Veiðimenn mega koma í húsið einni klukkustund fyrir upphaf veiði og skulu rýma það á sama tíma á brottfaradegi. Veiðimenn skulu ræsta húsið rækilega fyrir brottför og taka með sér allt rusl. Hægt er að kaupa þrif, sjá má upplýsingar um það í veiðihúsinu. Veiðimenn leggja sjálfir til sængur og sængurfatnað.Leiðarlýsing að veiðihúsi
Ekið er sem leið liggur í gegnum Borgarnes og farið þjóðveg upp á Mýrar til vinstri þegar út úr Borgarnesi er komið. Ekið er um 18 km og beygt til vinstri veg nr.533 rétt áður en komið er að Lyngbrekku. Ekinn er um 1km þegar komið er að afleggjara á hægri hönd sem liggur að veiðihúsinu.Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Engin veiðikort skráðVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Engin veiðiskýrsla skráð
Fara efst á síðu