Laxá í Aðaldal - Árbót/Tjörn

SVFR býður nú þriggja stanga svæði fyrir löndum Tjarnar og Árbótar, í Aðaldalnum miðjum. Veiðisvæðin eru gegnt hvort öðru, en þó er svæðið talsvert lengra Árbótarmegin. Hér er nóg pláss fyrir stangirnar þrjár enda flestir veiðistaðirnir ansi langir. Þetta svæði er frábær kostur fyrir þá sem vilja komast í mestu stórlaxa á landsins, auðvelt aðgengi og að sjá um sitt fæði sjálfir í mjög vel útbúnu veiðihúsi. Á svæðinu eru þekktir veiðistaðir eins og Tjarnhólmaflúð, Símastrengur, Höskuldarvík, Bótarstrengur og Langaflúð. Einstök náttúrufegurðin lætur engan ósnortinn og ekki skemmir stórlaxavonin. Þá er einnig silungur og urriði á þessu svæði. Sjá kort
Laxá í Aðaldal-Árbót/Tjörn - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Norðurland. Árbót er í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá Húsavík
Veiðisvæði:Veiðisvæðið nær frá Tjarnarhólma að og með Birgisflúð Tjarnarmegin og frá Höskuldarvík niður að Bæjarklöpp Árbótamegin.
Tímabil:1. júlí - 20. september
Veiðileyfi:Frá hádegi 1. júlí til 20. september eru seldir stakir dagar frá morgni til kvölds. Leyfilegt er að veiða á eina stöng vestanmegin og á tvær stangir austanmegin.
Daglegur veiðitími:07.00 - 13.00 og 16.00 til 22.00. Síðsumars færist veiðitími síðari hluta dags frá 15.00 til 21.00.
Fjöldi stanga:
Leyfilegt agn:Aðeins er leyfð fluguveiði og skal laxinum sleppt eftir viðureign. Skylduslepping er á öllum laxi. Viðkvæm náttúra svæðisins krefst varkárni af hendi veiðimanna en við Laxá er viðkvæmt fuglalíf. Gangið vel og snyrtilega um árbakkana.
Vinsælar flugur:Laxá Blá, Sun Ray Shadow, Night Hawk, Silver Doctor
Veiði síðastliðið ár:
Umsjónaraðili:
mynd af veiðihúsinu

Veiðihús

Veiðileyfum fylgir nú veiðihúsið Lynghóll. Húsið er í landi Knútsstaða og þar eru fimm herbergi með svefnaðstöðu fyrir tíu manns. Veiðimen skulu hafa með sér sængurfatnað. Ganga skal vel um og skal húsum ávalt skilað hreinum.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Beygt er af Húsavíkurvegi við bæjarmerki Knútsstaða og er Lynghóll rautt hús á hægri hönd.
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French