Bíldsfell – Draumur fluguveiðimannsins

Bíldsfellssvæðið er í huga margra einn samfelldur veiðistaður. Veiðilegir strengir, straumbrot og ólgur eru óteljandi og veiðimenn því ævinlega „rétt byrjaðir“ þegar veiðiferð lýkur. Sumarið 2011 var gott í Soginu en þá veiddust 750 laxar (að undanskyldu svæðinu við Syðri Brú) og þar af voru 405 laxar veiddir í Bíldsfelli. Metsumarið 2010 veiddust 480 laxar í Bíldsfelli. Einnig er á svæðinu mikið af bleikju sem getur verið mjög stór. Margir veiðimenn heimsækja svæðið eingöngu til að gera út á bleikjuna. Í Soginu máttu eiga von á 20 pundurum, það veiddust þrír slíkir sumarið 2011. Veiðihúsið við Bíldsfell hefur verið stækkað og nú fer enn betur um veiðimenn á þessu frábæra svæði.
Athugið að í stað veiða/sleppa reglu í september hefur verið settur tveggja laxa kvóti á hverja dagsstöng. Einnig eru veiðimenn minntir á að gæta ýtrustu varkárni þegar vaðið er út í ána og nota björgunarvestin sem geymd eru í veiðihúsinu.
Sog Bíldsfell - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Suðurland, u.þ.b. 50 km. frá Reykjavík
Veiðisvæði:Bíldfellssvæðið er á vesturbakka Sogsins frá útfallinu við virkjunina að og með veiðistaðnum Neðstahorni en þar fyrir neðan eru Torfastaðaveiðar. Hluti veiðisvæðisins er því gegnt Syðri-Brú og hluti gegnt Ásgarði.
Tímabil:28. júní til 27. september.
Veiðileyfi:Einn eða fleiri dagar í senn.
Daglegur veiðitími:Veitt er frá morgni til kvölds, kl. 7-13 og 16-22. Eftir 14. ágúst er veitt á seinni vaktinni frá kl. 15-21.
Fjöldi stanga:3.
Leyfilegt agn:Fluga, maðkur, spónn. Fluga, maðkur og spónn. Athugið að eftir 1. september er tveggja laxa kvóti á hverja dagsstöng. Eftir það skal veitt og sleppt.
Vinsælar flugur:Rauð og Svört Frances, Snælda.
Veiði síðastliðið ár:480 laxar sumarið 2010
Umsjónaraðili:
mynd af veiðihúsinu

Veiðihús

Á staðnum er glæsilegt veiðihús. Aðalhúsið er með þremur tveggja manna herbergjum en nýbyggt sérhús með tveim tveggja manna herbergjum verður tekið í notkun í sumar. Í nýja húsinu eru herbergin með sér snyrtingum og gert er ráð fyrir aðgengi hjólastóla. Veiðimenn mega koma í húsið klukkustund eftir að veiðitíma lýkur daginn fyrir veiðidag og ber að rýma það á sama tíma brottfarardag. Veiðimenn leggja sjálfir til mat, hreinlætisvörur, rúmföt og handklæði. Á staðnum eru gasgrill, sængur og koddar. Menn eru beðnir um að þrífa húsið vel og taka allt rusl með sér er þeir yfirgefa húsið. Nánari upplýsingar gefa Árni og Guðmundur Þorvaldssynir, í síma 482-2671. Sjá kort

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Ef komið er frá Reykjavík er beygt til vinstri upp Grafningsveg (vegur 350) áður en komið er að brúnni yfir Sogið hjá Þrastarlundi. Að afleggjaranum að Bíldsfelli eru um 5 km. Sá afleggjari er ekinn alveg niður að á, þar sem veiðihúsið stendur.
“Sogið er einstakt. Ímyndaðu þér baráttuna við stórfisk í þessu mikla fljóti. Á bökkum Sogsins hverfur oft hugurinn til gömlu góðu daganna og upp renna myndir af ógnarveiði á fyrri hluta aldarinnar. Það er varla hægt að hugsa sér haust án baráttu við fisk í Soginu.”María Anna Clausen
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French