tLeirvogsá
Leirvogsá
Leirvogsá er frábær laxveiðiá í fögru umhverfi rétt utan við borgarmörkin. Hún hefur sannað það rækilega síðustu ár með hárri meðalveiði á dagstöng. Í Leirvogsá er rúmt um veiðimenn enda aðeins veitt á tvær stangir hverju sinni. Margir fjölbreyttir veiðistaðir prýða þessa fallegu á. Maðkveiðimenn una sér vel í Leirvogsá en áin geymir einnig fjölda frábærra fluguveiðistaða. Leirvogsá er dragá með lindarvatnsáhrifum og er vatnasvið hennar um það bil 85 ferkílómetrar. Hún rennur úr Leirvogsvatni og er um það bil 12 kílómetra löng, en fiskgengi hlutinn er um átta kílómetrar og endar undir Tröllafossi. Fyrir utan laxinn er mikið af vænum sjóbirtingi í Leirvogsá.
Sumarið 2011 veiddust 383 laxar í Leirvogsá og 55 sjóbirtingar. Þetta er heldur minna en undanfarin ár en 2010 veiddust 559 laxar í Leirvogsá og 777 árið 2009. Meðalveiði síðustu fjögurra ára er yfir 700 laxar en metveiði var í Leirvogsá 2008 þegar 1.191 lax veiddist. Áin á því tölvert inni m.v. veiðitölur síðasta árs.
Athygli er vakin á því að veiðitímabilið 2012 verður fært aftar og mun áin opna 1. júlí en veitt verður þess í stað til 26. september.| Leirvogsá - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Mosfellsbær |
| Veiðisvæði: | Frá 1. júlí til og með 29. júlí er ánni skipt í þrjú veiðisvæði. Svæði 1 nær frá ósi að og með Sleppitjarnarhyl. Svæði II er frá Neðri-Skrauta til og með Grundarhorni. Svæði III er frá og með Bakka og að Tröllafossi. Frá 30. júlí og til og með 26. september er ánni skipt í tvö veiðisvæði. Svæði I nær frá ósi árinnar að og með Seljalandsstreng og svæði II er frá og með Holu og að Tröllafossi. Seljalandsstrengur er fyrir ofan Svilaklöpp. |
| Tímabil: | 1. júlí til 25. september |
| Veiðileyfi: | Veitt er einn dag í senn frá morgni til kvölds. |
| Daglegur veiðitími: | 1/7 – 4/8 kl. 7.00–13.00 og 16.00–22.00 daglega. 5/8 – 4/9 kl. 7.00–13.00 og 15.00–21.00. 5/9 – 25/9 kl. 7.00–13.00 og 14.00–20.00. |
| Fjöldi stanga: | 2 |
| Leyfilegt agn: | Fluga og maðkur |
| Vinsælar flugur: | Blue Charm, Frances, gáruhnútstúpur og örtúpur. |
| Veiði síðastliðið ár: | 383 lax á dagsstangirnar tvær |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Veiðihús er í landi Norðurgrafar og er það upphitað og með raflýsingu. Það er gamalt en í ágætu standi, í því er vatnssalerni og eldunaraðstaða. Húsið er opið yfir veiðitímann. Aðgerðar- og vigtunaraðstaða er í gámi á bílaplaninu. Leyfðar eru tvær stangir í ánni og eru þær seldar einn eða fleiri daga í senn frá morgni til kvölds. Veiðimenn eru beðnir um að ganga vel um veiðihúsið, ána og umhverfi hennar, ræsta húsið og gáminn vel fyrir brottför og taka með sér allt rusl. Umsjónarmaður er Viðar JónassonLeiðarlýsing að veiðihúsi
Ekið er sem leið liggur vesturlandsveginn í gegnum Mosfellsbæinn, yfir Leirvogsána og tekinn þriðji afleggjari á hægri hönd í gegnum iðnaðarhúsahverfi. Þessi vegur kvíslast tvisvar sinnum. Fyrst er tekinn vinstri afleggjarinn og næst sá hægri. Afleggjarinn er alls um 3,5 kílómetrar að lengd, endað er á að aka niður brekku og blasir þá veiðihúsið við á hægri hönd..Annað
Athugið að veiðimönnum ber að mæta að morgni í veiðihúsið og draga um svæði. Ekki er beðið með drátt ef mætt er of seint. Athugið að vegna úthlutunar til landeigenda eru ekki allir dagar til úthlutunar hjá SVFR.
Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Engin veiðikort skráðVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Ná í veiðiskýrslu
Fara efst á síðu