Selá í Álftafirði

Tveggja stanga veiðisvæði félagsins hafa verið ákaflega vinsæl og því lá beinast við að bæta við slíku svæði. Selá er mjög falleg og vaxandi laxveiðiá sem rennur um Starmýrardal í Álftafirði, nánast mitt á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs. Á veiðisvæðinu hlykkjast áin í fallegum hyljum á þar sem finna má kjarrivaxin gljúfur og líbarítkletta. Leigutakar hafa stundað laxarækt í ánni síðustu ár, og er veiðisvæðið um 9. kílómetrar með um 20 merktum veiðistöðum.

Nú hefur veiðitími verið færður aftur auk þess sem að maðkveiði er leyfð á nýjan leik.

Selá í Álftafirði - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Selá er mitt á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs
Veiðisvæði:Öll áin sem er fiskgeng um 9 km.
Tímabil:1. júlí til 30. september
Veiðileyfi:Einn eða fleiri dagar frá hádegi til hádegis. Stangirnar eru seldar saman.
Daglegur veiðitími:Frá klukkan 7-13 og 16-21 daglega. Eftir 8. ágúst breytist seinni vaktin í 15-21.
Fjöldi stanga:2
Leyfilegt agn:Fluga og maðkur
Vinsælar flugur:Frances, Snælda og hinar ýmsu túbur.
Veiði síðastliðið ár:2010; 152 laxar
Umsjónaraðili:Haukur s: 844-6831, Guðmundur s: 894-0451, Gunnar Rúnar s: 860-3525
mynd af veiðihúsinu

Veiðihús

Aðstaða fyrir veiðimenn hefur verið stórbætt en nú er bóndabær til afnota fyrir veiðimenn. Veiðimenn mega koma í húsið klukkustund eftir að veiðitíma lýkur daginn fyrir veiðidag og þeim ber að rýma það á sama tíma brottfarardag. Þrífa ber veiðihúsið fyrir brottför.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Frá brúnni yfir Selá er keyrt um 8 km, eftir þjóðvegi 1, þar til komið er að Múla III, þar er keyrt upp hæð og er veiðihúsið þar á hægri hönd. Hins vegar er beygt við bæinn Starmýri 1, þegar keyrt er upp að efri veiðistöðum árinnar.
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French