tSetbergsá - Tveggjastanga perla
Setbergsá
Setbergsá er lítil og nett dragá á Skógarströnd. Áin kemur úr Hestfjalli að vestan um Hestgil og Ausgil en Sátu að austan og liðast niður Litla Langadal til sjávar þar sem hún fellur í Stóru Langadalsá. Dalurinn er gömul þjóðleið (Flatnaleið) milli Hnappadals og Skógarstrandar og er allt umhverfi gríðarlega fallegt, tignarleg fjöll, kjarri vaxnar hlíðar og mikil gróðursæld. Veiðisvæðið er um fimm kílómetra langt. Undanfarinn áratug eða svo hefur áin eingöngu verið veidd af landeiganda og hefur hann gengið sérstaklega varlega um og til mikillar fyrirmyndar hvernig hugsað hefur verið um ánna.
Tveggja fiska kvóti - veiða og sleppa eftir það.| Setbergsá - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Skógarströnd, um 160 km frá Reykjavík. |
| Veiðisvæði: | Veitt er frá ármótum Setbergsár og Stóru Langadalsár og inn Litla Langadal, veiðimenn eru þó hvattir til að fara ekki innar en sem nemur gömlu fjárhúsunum í Litla Langadal og leyfa fiski sem gengur fram dalinn að hrygna þar í friði. Ekki er heimilt að veiða í sameiginlegum ós ánna tveggja, Ósá. |
| Tímabil: | 15. júlí til 15. september |
| Veiðileyfi: | Seldir eru tveir dagar í senn, frá hádegi til hádegis. Veitt er sex daga í hverri viku, fimmtudaga er áin hvíld. Kvóti er tveir laxar á stöng á dag og eftir að kvóta er náð, er heimilt að veiða og sleppa. Veiðimenn eru hvattir til að sleppa tveggja ára laxi, sé þess nokkur kostur. Ekki má veiða nær laxastiga í Illafossi en sem nemur 30m. Veiðimenn eru sérstaklega beðnir að aka varlega um alla slóða, virða hámarkshraða sem er 40km/klst, loka hliðum sem þeir koma að og forðast að aka yfir gróið land.
|
| Daglegur veiðitími: | Daglegur veiðitími er frá kl 07:00 – 13:00 og 16:00 – 22:00 . Frá og með 14. Ágúst er veiðitíminn 07:00 – 13:00 og frá 15:00 – 21:00. |
| Fjöldi stanga: | 2 |
| Leyfilegt agn: | Fluga og maðkur. |
| Vinsælar flugur: | Frances, svört&rauð, ýmar Kröflur (gul með svörtum haus, míktrótúba), Blue Charm, Sunray, Green but, haugurinn og Silver sheep. |
| Veiði síðastliðið ár: | Árið 2009 veiddust 19 laxar, 2008 var veiðin 29 laxar, 2007 veiddust 20 laxar, en eins og fram hefur komið, var áin mjög lítið stunduð þar sem fyrrverandi leigutaki var einn af landeigendum við ánna og stundaði hana ákaflega lítið. |
| Umsjónaraðili: | Eftirlitsmaður með veiði er Bjarni Júlíusson, bóndi að Árholti við Haukabrekku. Sími 438 1787 eða 693 0461. |
|
Veiðihús
Er í landi Klungurbrekku. Þetta er gamalt og lúið hús, um 35fm. Tvö svefnherbergi, eldhúskrókur og baðherbergi. Í húsinu er rennandi vatn og rafmagn. Veiðimenn eru hvattir til að koma með tjaldvagn eða fellihýsi og geta hægflega komið því fyrir á planinu við veiðihúsið. Jafnframt má benda á bændagistingu nær Stykkishólmi, en Hólmurinn er einungis í rúmlega 20km fjarlægð.Leiðarlýsing að veiðihúsi
Ekið er í gegnum Borgarnes, vestur mýrar sem leið liggur og beygt til norðurs um Heydalsveg, þjóðveg nr. 55. Þegar komið er niður af Heydalsvegi, norðanmegin á Snæfellsnesi er beygt til vinstri við bæinn Bíldhól og ekið í átt til Stykkishólms. Um 20 km frá gatnamótunum er komið að Setbergsá. Farið er yfir brúnna og um 100m vestar árinnar er beygt til vinstri upp að bænum Klungurbrekku. Veiðihúsið stendur þar uppá mel, um 200 metrum frá þjóðveginum.Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Engin veiðikort skráðVeiðistaðalýsing
VeiðistaðalýsingVeiðiskýrsla
Engin veiðiskýrsla skráð
Ég og félagi minn vorum að koma úr Setbergsá og fengum 8 stykki og sáum helling af löxum. Það er gaman að veiða í henni, hún er lítil og viðkvæm, sem þýðir að það verður að fara varlega að veiðistöðunum, umhverfið er mjög fallegt og fullt af fallegum veiðistöðum. Fara efst á síðu