tSog – Ásgarður - silungur
Sog Ásgarður
Í gegnum árin hefur sannast að silungasvæðið í Ásgarði er frábært silungsveiðisvæði – með laxavon.
Athugið að skylt er að sleppa hoplaxi.| Sog Ásgarður - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | U.þ.b. 50 km. frá Reykjavík |
| Veiðisvæði: | Í apríl, maí og til 10. júní er veitt frá markagirðingu við Álftavatn og upp allt Ásgarðssvæðið. Eftir 10. júní er eingöngu veitt á silungasvæði sem nær frá vík neðan gamla veiðihússins að markagirðingu við Álftavatn. |
| Tímabil: | 1. apríl til 20. júní |
| Veiðileyfi: | Einn eða fleiri dagar í senn |
| Daglegur veiðitími: | Veitt er frá morgni til kvölds, kl. 08.00 til 08.00 |
| Fjöldi stanga: | 3 |
| Leyfilegt agn: | Fluga, maðkur og spónn. |
| Vinsælar flugur: | Ýmsar silungaflugur og púpur |
| Veiði síðastliðið ár: | |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Fram til 20 júní fylgir veiðihúsið á laxasvæði Ásgarðs með silungsveiðileyfum. Eftir það fylgir ekkert veiðihús með svæðinu, en veiðimönnum er bent á þjónustuskálann við Þrastarlund. Þar má nálgast veitingar og snyrtiaðstöðu. Leiðarlýsing að veiðihúsi
Beygt er til vinstri skömmu eftir að ekið hefur verið yfir brúna hjá Þrastalundi (vegur 36). Ekið upp Grímsnesveg (veg 36) um það bil 3 km og um 500 m áður en komið er að vegi að laxasvæði er beygt til vinstri að bílastæði við Álftavatn. Veiðimenn eru beðnir að virða rétt sumarhúsaeigenda og fara aðeins um svæðið meðfram ánni en ekki yfir lóðir þeirra.
Veiðimenn eru minntir á að gæta ýtrustu varkárni þegar vaðið er út í ána og nota björgunarvestin sem geymd eru í veiðihúsinu.
Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Ná í kortVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Engin veiðiskýrsla skráð
“Sogið er einstakt. Ímyndaðu þér baráttuna við stórfisk í þessu mikla fljóti. Á bökkum Sogsins hverfur oft hugurinn til gömlu góðu daganna og upp renna myndir af ógnarveiði á fyrri hluta aldarinnar. Það er varla hægt að hugsa sér haust án baráttu við fisk í Soginu.”María Anna Clausen Fara efst á síðu