Hraunsfjörður - Spennandi nýjung á Snæfellsnesi

Hraunsfjörður er mjög skemmtilegt silungsveiðisvæði. Um er að ræða lón fyrir innan stíflu við innri brú yfir Hraunsfjörð á Snæfellsnesi. Svæðið er víðáttumikið og mjög víða má verað var við fisk.
Innan við stíflu má eiga von á laxi þegar líður á sumarið. Bleikja heldur sig með kantinum á Berserkjahrauni sem liggur að vatninu. Er líður á sumarið færir bleikja sig oft innar í lónið. Þarna veiðist sjóbleikja, sjóbirtingur og lax. Ekki flæðir inn í lónið nema í stórstreymi og vatnið því nánast ferkst. Á hverju ári veiðist nokkuð af laxi sem numið hefur land eftir að hafbeitarstöði var lögð niður. Oft á tíðum er mjög góð silungsveiði þarna og bleikjan er væn.

Hraunsfjörður - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Á Snæfellsnesi
Veiðisvæði:Allt lónið innan við stíflu. Veiði neðan stíflu er bönnuð
Tímabil:Veiðitíminn er frá 1.apríl til og með 30. september.
Veiðileyfi: Einn dagur í senn.
Daglegur veiðitími:Frá kl. 7 - 23
Fjöldi stanga:Ótakmarkaður
Leyfilegt agn:Fluga, maðkur og spónn
Vinsælar flugur:Ýmsar silungaflugur, gjarnan þyngdar.
Veiði síðastliðið ár:
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Ekkert veiðihús en stefnt að afdrepi með salernisaðstöðu við brúna.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Hraunsfjörður er í um 180 km fjarlægð frá Reykjavík séu farin Hvalfjarðargöng. Ekið er sem leið liggur upp í gegnum Borgarnes og síðan Mýrar og yfir Vatnaheiði í átt að Stykkishólmi. Er komið er yfir heiðina er beygt til vinstri í átt að Grundarfirði og síðan aftur til vinstri eftir um 4 km við skilti er vísar á veiðisvæði.
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French