tLangavatn – Gott silungsveiðivatn í Borgarfirði
Langavatn
Langavatn er í sunnanverðum Langadal í Mýrasýslu, norðaustur af Grímsstaðamúla. Hæð þess yfir sjó er 215 metrar og vatnið er um 5,1 km að flatarmáli. Mesta dýpi vatnsins er um 36 metrar. Í það rennur Langavatnsá að norðan en Beilá að austan. Úr suðvesturhorni þess fellur Langá til suðurs. Langavatn hefur verið notað til vatnsmiðlunar og því getur yfirborðshæð þess verið nokkuð breytileg. Í vatninu er bæði bleikja og urriði og innan um leynast mjög vænir fiskar. Helstu veiðistaðir eru austarlega í vatninu við hólma sem eru fram undan leitarmannakofa við vatnið. Góðir veiðistaðir eru einnig við útfall Langár. Daglegur veiðitími er frá kl. 7 – 24 en jafnan gefur best á morgnana og á kvöldin. Í vatnið er seldur ótakmarkaður fjöldi stanga og frítt er fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára í fylgd með fullorðnum.
| Langavatn - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | U.þ.b 98 km frá Reykjavík |
| Veiðisvæði: | Vatnið allt. |
| Tímabil: | 15. júní – 30. september. |
| Veiðileyfi: | Fáanlegt í einn eða fleiri daga í senn. |
| Daglegur veiðitími: | 7 – 24 |
| Fjöldi stanga: | Ótakmarkaður |
| Leyfilegt agn: | Allt löglegt agn |
| Vinsælar flugur: | Allar smáar flugur eru vinsælar í Langavatnið. Prófið endilega Peacoc og fleiri þessháttar, kúluhausar hafa gefið vel. |
| Veiði síðastliðið ár: | |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Engin gisting er við Langavatn en nægt rými til að tjalda. Engin salernisaðstaða er heldur á svæðinu. Leiðarlýsing að veiðihúsi
Til að komast að Langavatni er ekið sem leið liggur eftir þjóðvegi nr. 1 í gegnum Borgarnes að Svignaskarði og þar tekinn afleggjari á vinstri hönd upp með Gljúfurá. A fleggjarinn er 13 km langur og er oftast vel fólksbílafær en það er þó ekki verra að vera a.m.k. á 4x4 fólksbíl. Þá er einnig fært upp með Langánni.
Veiðileyfi í Langavatn eru einnig seld hjá Birnu Konráðsdóttur á Borgum.
Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Engin veiðikort skráðVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Engin veiðiskýrsla skráð
Fara efst á síðu