tVatnasvæði Lýsu -silungsveiði með góðri laxavon síðsumars.
Vatnasvæði Lýsu
Vatnasvæði Lýsu samanstendur af þremur meginvötnum, Torfavatni, Reyðarvatni, Lýsuvatni, auk þess sem að veitt er í smáánum sem á milli þeirra renna.
Þarna er mikill silungur, sem þó er smár, en meðalþyngd hefur farið vaxandi undanfarin ár samfara aukinni sjóbirtingsgengd. Þegar komið er fram yfir mitt sumar fer að bera á laxgengd, sem getur verið nokkuð góð þegar að best lætur. Meðaltalsveiði er 124 laxar á sumri, en síðasta góða veiðiár í Lýsunni var sumarið 2005 þegar að 208 laxar veiddust. Virðist sem að þurrkasumur undanfarinna ára hafi leikið svæðið grátt hvað laxveiði snertir, en við þær aðstæður er erfitt að fá laxinn til þess að taka í vötnunu. Þegar að vatn er fyrir hendi má hins vegar finna laxi í "stubbunum" milli vatnanna.
| Vatnasvæði Lýsu - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Snæfellsnesi, við rætur Snæfellsjökuls. |
| Veiðisvæði: | Það veiðisvæði sem stendur til boða er ofan brúar á þjóveginum. Til 1. júlí nær veiðisvæðið niður að brú við þjóðveg, en eftir 1. júlí eru veiðimörk við gamla árfarveginn neðan Kistuhyls í Netá. Veiðisvæðið í Vatnsholtsá neðan brúar er því undanskilið.
|
| Tímabil: | Veiðitíminn er frá 1. apríl til 15. september og eru sex stangir leyfðar á svæðunum. |
| Veiðileyfi: | 6 stangir |
| Daglegur veiðitími: | 07-13 og 16-22 en eftir 14. ágúst er veiðitíminn 07-13 og 15-21 |
| Fjöldi stanga: | 6 |
| Leyfilegt agn: | Fluga, maðkur og spúnn. |
| Vinsælar flugur: | Kemur síðar |
| Veiði síðastliðið ár: | Meðaltalsveiði er 124 laxar á sumri, en síðasta góða veiðiár í Lýsunni var sumarið 2005 þegar að 208 laxar veiddust. |
| Umsjónaraðili: | Gunnar Jónasson, Lýsudal, s: 8934515 |
|
Veiðihús
Ekki er veiðihús innifalið í veiðileyfinu .Leiðarlýsing að veiðihúsi
Mjög góð bændagisting er á svæðinu.
Nánari upplýsingar má nálgast á vefnum
kastguesthouse.isVídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Engin veiðikort skráðVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Engin veiðiskýrsla skráð
Fara efst á síðu