Minnum á hreinsunardaginn í Elliðaánum í dag!

Hin svívinsæla hreinsun Elliðaánna sem árlegur viðburður á vegum Stangaveiðifélags Reykjavíkur, fer fram fimmtudaginn 6. júní nk.

Hreinsunarverkefnið verður gangsett við veiðihúsið í Elliðaárdal klukkan 17.00. Ákvörðun um þessa dagsetningu var tekin eftir könnun á Fecebook síðu Elliðaánna, þar sem niðurstaðan var sú að afgerandi meirihluti valdi þennan dag. Verður sérstaklega hóað í þá þátttakendur í könnuninni sem kusu þennan dag.

Árnefnd Elliðaánna annast skipulagningu og utanumhald þessa verkefnis f.h. SVFR og er þess vænst að viljugir félagsmenn í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur og aðrir velunnarar Elliðaánna taki þátt í þessu þakkláta verkefni. Gert er ráð fyrir að hreinsun verði lokið um kl. 20.00.

Verkefnum verður deilt á milli þátttakenda við veiðihúsið kl. 17.00 og þeim falin hreinsun á tilteknum svæðum við Elliðaárnar, en víða er að finna rusl og annan óþrifnað í og með ánum. Verkefni dagsins er að gera umhverfi ánna eins snyrtilegt og kostur er og SVFR til sóma í hvívetna.

Undanfarin ár hafa margir félagsmenn brugðist vel við ákalli SVFR um að leggja gjörva hönd á plóg við þetta tækifæri og hafa ekki séð eftir því. Enda er það almannarómur að þeir sem taka þátt í þessu átaki hafi ekki borið skarðan hlut frá borði í veiði í Elliðaánum í framhaldinu, enda eru það staðkunnugir árnefndarmenn og aðrir gjörkunnugir félagsmenn sem fara fyrir hreinsunarflokkunum og miðla gjarnan af visku sinni og reynslu við þetta tækifæri.

Öllum er frjálst að leggja hönd á plóginn enda allir velunnarar Elliðaánna velkomnir. Þátttakendur eru hvattir til þess að vera í klofstígvélum eða vöðlum, þar sem gjarnan þarf að hirða rusl úr árfarveginum. Einnig er fólk hvatt til að búa sig eftir aðstæðum að öðru leyti.

Stangaveiðifélag Reykjavíkur hvetur félagsmenn sína sem og aðra vini Elliðaánna til þátttöku í hreinsunarátakinu.

By admin Fréttir