Stjórn og starfsfólk
Sigurþór Gunnlaugsson
Framkvæmdastjóri
Sigurþór hóf störf hjá Stangaveiðifélaginu í byrjun júní 2019. Sigurþór hefur mikla reynlsu af rekstri, verkferla- og fjárhagsáætlanagerð og kostnaðareftirliti. Hann starfaði m.a. áður sem markaðsstjóri Kringlunnar og síðar stjórnandi hjá Air Atlanta Icelandic, ma.a. stöðvarstjóri í Bretlandi og Indlandi, og yfirmaður á flugrekstrarsviði, útstöðva og ferða.
sigurthor@svfr.is
Brynjar Þór Hreggviðsson
Sölustjóri
Brynjar (Binni) hóf störf hjá Stangaveiðifélaginu í júlí 2018. Hann er veiðimaður fram í fingurgóma og hefur starfað við leiðsögn víðsvegar um land. Binni hóf sinn veiðiferil ungur að árum og fékk sinn fyrsta lax um 8 ára aldur. Binni hefur veitt í flestum ám sem SVFR hefur innan sinna vébanda og leiðsagt í þeim ófáum, þannig að hann þekkir veiðisvæði félagsins út og inn. Hann hefur kastað flugu á flestum vatnasvæðum á landinu og er hann mest fyrir það að egna fyrir lax.
Ingimundur Bergsson
Skrifstofustjóri
Ingimundur hóf störf hjá Stangaveiðifélaginu 2018, en hann er flestum veiðimönnum kunnugur sem aðal maðurinn á bakvið Veiðikortið sem hann hefur starfrækt til fjölda ára. Ingimundur kemur til að byrja með inn til SVFR í hálft starf og verður því að hjálpa veiðimönnum SVFR samhliða þeim veiðimönnum sem eru með Veiðikortið í farteskinu fyrir sumarið.
Ingimundur er gífurlega vel að sér í silungaveiði og er sérlegur sérfræðingur SVFR í þeim málum.
Jón Þór Ólason
Formaður
Jón Þór er formaður SVFR og Þingeyingur í húð og hár. Forfallinn laxveiðimaður sem sinnir lögfræðistörfum utan veiðitímabilsins. Jón Þór hefur verið virkur í störfum fyrir SVFR í gegnum árin og starfað sem leiðsögumaður á svæðum félagsins til fjölda ára. Honum er umhugað um SVFR og vill sjá veg þess sem mestan og vill styrkja félagslega þáttinn í félaginu sem mest og stuðla að stangaveiði sem almennings og fjölskylduíþróttar. Jón Þór er ötull talsmaður gegn laxeldi í sjó og vill berjast gegn því með kjafti og klóm.
Ársvæði: Langá og Elliðaár
Ragnheiður Thorsteinsson
Varaformaður
Ragga eins og hún er oftast kölluð, kom inn í stjórn eftir aðalfund 2019, eftir 2ja ára fjarveru. Ragga sat í stjórn félagsins frá 2011 til 2017 og hefur þar á undan setið í skemmtinefnd félagsins. Hennar heimavöllur er Langáin, þar sem hún veiðir flesta undir borðið.
Ársvæði: Sogið, Elliðaár,Korpa og Leirvogsá
Hrannar Pétursson
Ritari
Hrannar er fæddur og uppalinn á Húsavík og veiðimaður fram í fingurgóma eftir að hafa orðið veiðidellunni að bráð fyrir margt löngu síðan. Hann býr yfir gífurlegri reynslu af markaðs- og kynningarstarfi og hefur brennandi áhuga á að byggja á grunngildum SVFR og félagsmönnum til framtíðar með það að leiðarljósi að efla félagsstarf SVFR.
Ársvæði: Laxá í Laxárdal og Mývatnssveit og Laugardalsá
Helga Jónsdóttir
Meðstjórnandi
Helga Jónsdóttir er viðskiptafræðingur og starfa við Innra eftirlit hjá Högum. Auk veiðinnar stunda ég golf, skíði og raun alla útivist en stefnan er tekin á hálfan Járnkall (e. Iron Man) á Ítalíu í haust.
Veiðiáhuginn fer vaxandi og draumurinn um að vera sjálfstæð veiðikona færist nær. Mín uppáhaldsveiðiá er Langá.
Ég tek áskorunum fagnandi og hugsa í lausnum.
Ársvæði:
Lára Kristjánsdóttir
Meðstjórnandi
Lára er Snæfellingur í húð og hár, fædd og uppalin í Ólafsvík.
Lára hefur lengi tekið þátt í starfi Stangaveiðifélags Reykjavíkur og starfað í árnefnd Andakílsár undanfarin 15 ár.
Lára er reynd veiðikona og hefur veitt víða. Þá hefur hún unnið við veiðileiðsögn laxveiðimanna, ein fárra kvenna á Íslandi. Lára segir þessi verkefni hafa fært sér bæði reynslu og þekkingu sem hún vilji deila með félaginu.
Ársvæði:
Trausti Hafliðason
Meðstjórnandi
Trausti bjó í Mosfellssveit á fyrstu árum ævinnar en flutti ungur til Reykjavíkur. Veiðibakterían gerði fyrst vart við sig þegar hann var í sveit í Mývatnssveit á níunda áratugnum. Trausti hefur í gegnum árin verið virkur í félagsstarfi Stangaveiðifélagsins. Hefur hann meðal annars setið í árnefnd Langár í 8-9 ár og verið í ritnefnd Veiðimannsins í sex ár. Langá og Haukadalsá eru í sérstöku uppáhaldi hjá Trausta, sem hefur starfað í blaðamennsku í rúma tvo áratugi og er í dag ritstjóri Viðskiptablaðsins.
Ársvæði: Haukadalsá og Þverá í Haukadal