Frá 18 þús.

Korpa / Úlfarsá – vorveiði

Korpa / Úlfarsá er frábær á í fögru umhverfi í landi Reykjavíkur. Áin er um 7 km löng og rennur í bugðum og sveigjum til vesturs og fellur til sjávar í Blikastaðakró. Við Vesturlandsveg skiptir áin stundum um nafn og heitir þar fyrir neðan Korpúlfsstaðaá eða Korpa. Korpa / Úlfarsá er yfirleitt 10-20 metra breið, tær og ekki straumþung. Mikil vinna hefur farið í að laga til og búa til veiðistaði. Þessar lagfæringar á ánni hafa gert hana enn aðgengilegri til fluguveiða.

Ekki er til mikið af myndum frá vorveiðinni, við hvetjum veiðimenn til að senda okkur myndir!

Höfuðborgarsvæðið
Veiðitímabil: 01.04 - 29.05
Veiðitími er frá 08:00 - 20:00
Stangir: 1
Agn: fluga
Kvóti: öllum fiski sleppt
Ekkert hús
Bóka núna

Gisting

Engin gisting.

Tímabil

Frá 01. apríl til 29. maí.

Veiðin

Sjóbirtingur, 1 stöng, aðeins veitt á flugu með flugustöng. Engöngu veitt og sleppt.

Hentar

Byrjendum sem lengra komnum.

Korpa / Úlfarsá
Umsjón og veiðivarsla

Korpa - Úlfarsá

+354 568 6050

Veiðisvæðin - veiðin

Þrátt fyrir að það sé undir meðalveiði síðustu ára telst það samt sem góð veiði. Það er mikið af sjóbirtingi sem gengur upp ánna og getur hann verið mjög vænn. Í Stíflunni er myndavélateljari og skemmtilegt er að fylgjast með fiskunum sem um hann ganga.

Svæðið leynir á sér og gengur mikið af sjóbirtingi í ánna á ári hverju. Tilraunaveiði síðustu ára hefur sýnt fram á að stofninn er sterkur og má finna talsvert af vænum sjóbirtingi.

Til að halda veiðiálagi í lágmarki er veitt á eina stöng annan hvern dag. Eingöngu er leyfilegt að veiða á flugu með flugustöng.

Gagnlegar upplýsingar


Korpa
Veiði hefst:01. apríl
Veiði lýkur:29. maí
Fjöldi stanga:1 stöng
Veiðifyrirkomulag:Einn dagur í senn.
Veiðitími:08:00-20:00
Mæting, staður:Frjálst
Vinsælar flugur:Pheasant Tail, Squirmy, Black Ghost, Dýrbítur, Nobbler og Héraeyra

Leiðsögn


Leiðsögumenn SVFR eru veiðimenn með mikla og langa veiðireynslu og eru valdir af kostgæfni. Með leiðsögn verður veiðin markvissari, tíminn nýtist betur, og oftar en ekki ánægjulegri. Leiðsögumenn okkar upplýsa veiðimenn um bestu veiðistaðina í ánni, búnaðinn og veiðitækni.

  Markvissari veiði

  Fagleg ráðgjöf

Veiðireglur


Almennar

Vinsamlegast kynnið ykkur veiðireglurnar og virðið þær. Brot á veiðireglum varða fyrirvaralausum brottrekstri úr ánni, upptöku afla og veiðafæra ásamt öðrum viðurlögum eftir því sem við á.

Gangið vel um veiðisvæðið, valdið ekki jarðraski og hirðið allt rusl. Sýnið náttúrunni virðingu og keyrið ekki utanvega. Allan afla ber að skrá í veiðibók.

Sjá einnig almennar veiðireglur SVFR

LaxTímabil: 01.04 - 29.05
Leyfilegt agn: Fluga
Öllum fiski sleppt.